Skallagrímur hefur ákveðið að senda meistaraflokk kvenna til leiks í 1. deildinni á komandi keppnistímabili.
Um langtíma uppbyggingarstarf er að ræða og verður liðið að mestu skipað heimastelpum úr Borgarnesi, en tilkynnt verður um leikmannahópinn á næstu dögum. Þjálfari liðsins verður Milorad Sedlarević og honum til aðstoðar verður Embla Kristínardóttir.
Fyrsti heimaleikur kvennaliðsins í vetur fer fram í Fjósinu laugardaginn 10. október næstkomandi.




