Karl H. Guðlaugsson, fyrrum formaður og þjálfari hjá körfuknattleiksdeild Ármanns til áratuga, fagnar í dag 60 ára afmæli sínu.
Karl hefur sett gríðarlega sterkan svip á starf deildarinnar, bæði sem formaður og þjálfari allra aldursflokka félagsins. Meðal helstu hápunkta á hans farsæla ferli var þegar kvennalið Ármanns tryggði sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn í 65 ár undir hans stjórn vorið 2025 eftir sigur í 1. deildinni. Í kjölfarið var hann valinn þjálfari ársins í 1. deild kvenna, en sömu viðurkenningu hlaut hann einnig árið 2022.
Körfuknattleiksdeild Ármanns sendir Kalla innilegar heilladagskveðjur og þakkar honum ómetanlegt framlag og óteljandi vinnustundir í þágu félagsins í gegnum árin.




