Daníel Ágúst Halldórsson er genginn aftur til liðs við Fjölni og mun leika með félaginu á komandi leiktíð.
Daníel er uppalinn í Grafarvoginum en kemur nú aftur heim reynslunni ríkari eftir að hafa leikið í efstu deild hér heima sem og í bandaríska háskólaboltanum. Ríkir mikil ánægja í Fjölni með að fá hann aftur í gulu treyjuna fyrir átökin í vetur.




