HomeFréttirFagnar 25 ára starfsafmæli

Fagnar 25 ára starfsafmæli

Það gerist ekki oft í íslensku íþróttalífi að þjálfarar helgi stóran hluta ævinnar barna- og unglingastarfi og sýni jafn ótrúlega tryggð og raunin er í Vesturbænum. KR fagnaði á dögunum merku tímamótum þegar Bojan Desnica náði þeim glæsilega áfanga að hafa þjálfað hjá félaginu í aldarfjórðung samfleytt, eða frá haustinu 2001.

KR vakti athygli á þessum merka áfanga og hrósaði Bojan í hástert fyrir ómetanlegt framlag sitt til félagsins. Á þessum 25 árum hefur Bojan komið að þjálfun barna og ungmenna, bæði karla- og kvennamegin, landað ófáum titlum og átt stóran þátt í að móta og ala upp heilu kynslóðirnar af körfuboltafólki innan félagsins.

Í athugasemdakerfinu við færsluna kepptust fyrrum leikmenn og þjálfarar við að óska honum til hamingju. Þar má nefna Fannar Ólafsson, fyrrum meistarafyrirliða KR og landsliðsmann, sem þakkaði honum fyrir dásamlegt starf og vináttu, sem og fyrrum landsliðsmennina og þjálfarana Fal Harðarson og Herbert Arnarson sem lýstu honum sem miklum snillingi. Þá lét Sigurður Hjörleifsson, fyrrum þjálfari sem átti heiðurinn af því að ráða Bojan til KR fyrir 25 árum, falleg orð falla og kvaðst ætíð stoltur af því að eiga Bojan sem vin og hafa komið honum að starfi hjá félaginu.

Þótt Bojan hafi nú verið samfellt í 25 ár hjá KR er þjálfaraferill hans á Íslandi enn lengri, en fáir búa yfir jafn mikilli reynslu og brennandi ástríðu fyrir uppbyggingu ungra iðkenda hér á landi. Starf hans bæði innan vallar sem utan hefur sett mark sitt á ótal iðkendur sem bera honum einstaklega vel söguna.

Fréttir
- Auglýsing -