HomeFréttirKKÍ og Origo í stafrænt samstarf

KKÍ og Origo í stafrænt samstarf

Körfuknattleikssamband Íslands og Origo hafa hafið nýtt samstarf sem miðar að stafrænni framþróun hreyfingarinnar. Liður í því samstarfi er hönnun og þróun á nýjum vef KKÍ sem fer í loftið á næstunni, auk þess sem áhersla verður lögð á öfluga nýtingu tölfræðiupplýsinga frá Origo.

Í tilefni af samstarfinu voru framleiddar þrjár nýjar auglýsingar í samvinnu við Manhattan Marketing sem varpa ljósi á tölfræðina í íslenskum körfubolta á lifandi hátt. Landsliðsfólkið Elvar Már Friðriksson, Hilmar Smári Henningsson, Rebekka Rut Steingrímsdóttir og Tryggvi Snær Hlinason fara með aðalhlutverkin í auglýsingunum og lýsir sambandið yfir mikilli ánægju með afraksturinn.

Fréttir
- Auglýsing -