Bandaríski bakvörðurinn Jamir Chaplin, sem gekk nýverið til liðs við Keflavík, gekk í gegnum mikla lífsreynslu á síðasta ári þegar hann greindist með hólkaheilkenni (e. compartment syndrome) í vinstri fæti.
Ástandið kom upp eftir leik með kanadíska liðinu Saskatchewan Rattlers (nú Saskatoon Mamba) í CEBL-deildinni. Læknar sögðu Chaplin að ef hann hefði leitað á sjúkrahús aðeins einum degi síðar hefði þurft að taka fótlegginn af. Hann gekkst undir þrjár bráðaaðgerðir og var óvíst hvort hann myndi nokkurn tímann geta gengið almennilega aftur, hvað þá spilað körfubolta.
Eftir langt bataferli og endurhæfingu, þar sem hann þjálfaði unglinga í Flórída og fann styrkinn smám saman á ný, náði Chaplin fullum bata. Hann sneri aftur á parketið með Saskatoon Mamba á nýafstöðnu tímabili og sýndi að hann er kominn í fullt form, en hann skilaði meðal annars 12,7 stigum og 4,3 fráköstum að meðaltali í byrjunarliði liðsins áður en hann samdi við Keflvíkinga fyrir komandi átök í Bónusdeildinni.




