Keflvíkingar semja við bandarískan leikmann
Keflavík hefur samið við Jamir Chaplin um að leika með meistaraflokki félagsins á komandi leiktíð. Chaplin er 25 ára gamall og 196 sentímetra hár bakvörður. Hann lék í bandaríska háskólaboltanum með South Florida og Little Rock, en lék síðast með Saskatoon Mamba í kanadísku CEBL-deildinni. Keflvíkingar bjóða Jamir innilega velkominn til félagsins.
Copy and paste this URL into your WordPress site to embed
Copy and paste this code into your site to embed