HomeFréttirNý 3x3 körfuboltamótaröð kynnt til leiks í sumar: 1,4 milljónir í verðlaunapottinum

Ný 3×3 körfuboltamótaröð kynnt til leiks í sumar: 1,4 milljónir í verðlaunapottinum

Ný og opin mótaröð í 3×3 körfubolta, 3Á3 Mótaröð ÍTK, verður haldin núna í sumar. Um er að ræða þrjú mót þar sem keppt er á hálfum velli, en ein stigatafla gildir fyrir mótaröðina alla og verða 1.400.000 krónur í heildarverðlaunapotti.

Verðlaunin verða greidd út að loknu þriðja og síðasta mótinu. Stigin safnast saman yfir öll þrjú stopp mótaraðarinnar og því þurfa lið ekki nauðsynlega að vinna öll mótin til að tryggja sér hluta af pottinum.

Dagskrá og staðsetningar

Mótaröðin fylgir stórum viðburðum og hátíðum í síðsumars:

  • Stopp 01 – Reykjavík (Menningarnótt): 22. ágúst 2026. Skráning er þegar hafin og nákvæm staðsetning verður tilkynnt síðar.
  • Stopp 02 – Reykjanesbær (Ljósanótt): 5. september 2026.
  • Stopp 03 – Lokamót: 19. september 2026. Staðsetning tilkynnt síðar.

Fyrirkomulag

  • Þátttökugjald: 40.000 kr. á lið.
  • Keppnisfyrirkomulag: Útsláttarkeppni þar sem hvert lið fær að minnsta kosti tvo leiki (tvöfalt útsláttarkerfi – tapa þarf tveimur leikjum til að detta úr leik).
  • Reglur: Leikið er eftir opinberum FIBA 3×3 reglum og verða dómarar á staðnum til að dæma leikina.
  • Keppnispakki: Öll skráð lið fá gjafabréf frá Subway og Sbarro ásamt stauk frá Unbroken.

Opið er fyrir skráningu á fyrsta mót mótaraðarinnar, en frekari upplýsingar má finna hér.

Fréttir
- Auglýsing -