HomeFréttirStreet Ball Akureyri mætt aftur: Körfuboltaveislan í Garðinum hans Gústa hluti af...

Street Ball Akureyri mætt aftur: Körfuboltaveislan í Garðinum hans Gústa hluti af Akureyrarvöku

Körfuboltaáhugafólk fær eitthvað fyrir sinn snúð laugardaginn 29. ágúst næstkomandi þegar Street Ball Akureyri mætir aftur til leiks. Mótið er haldið í Garðinum hans Gústa í samstarfi við Akureyrarvöku og Akureyrarbæ, og er stefnt að því að skapa alvöru götukörfuboltastemningu fyrir alla fjölskylduna.

Um er að ræða 3 gegn 3 mót með einum varamanni per lið og verður keppt í fjórum aldursflokkum. Hvort sem markmiðið er að fara alla leið til sigurs eða einfaldlega að mæta, hafa gaman og njóta stemningarinnar, eru öll lið velkomin.

Auk sjálfs leiksins verður mikið um að vera á svæðinu. DJ mun halda uppi stemningunni alla restina af deginum, nýgrillaðir hamborgarar verða til sölu og boðið verður upp á fjölbreytt og glæsileg verðlaun fyrir vinningsliðin.

Mótið fer fram í Garðinum hans Gústa laugardaginn 29. ágúst 2026. Skráningargjald er 10.000 krónur á hvert lið og er lokafrestur til að skrá sig fimmtudaginn 27. ágúst. Hægt er að skrá lið til leiks með því að skanna QR-kóða á kynningarefni mótsins eða í gegnum skráningarhlekk á samfélagsmiðlum Street Ball Akureyri. Skipuleggjendur hvetja alla til að safna saman liði og mæta í Garðinn hans Gústa til að taka þátt í hátíðarhöfðunum.

Fréttir
- Auglýsing -