Annar leikdagur opna Norðurlandamótsins undir 15 ára stendur nú yfir í Kisakallio í Finnlandi.
Á fyrsta degi mótsins í gær fór stúlknalið Íslands vel af stað með 58–52 sigri gegn Lettlandi. Drengjaliðið mátti hins vegar þola tap í sínum opnunarleik gegn sterku liði Letta, 87–63.
Í dag, þriðjudaginn 4. ágúst, eiga stelpurnar frí en strákarnir mæta heimaliði Finnlands klukkan 15:45 að íslenskum tíma.
Hægt er að fylgjast með öllum leikjum í beinni útsendingu og skoða rauntímatölfræði á KorisTV (basket.fi).



