U18-landslið kvenna leikur sinn þriðja leik í A-riðli B-deildar Evrópumótsins í Rúmeníu í dag, þriðjudaginn 4. ágúst. Íslensku stelpurnar mæta Hollandi klukkan 10:30 að íslenskum tíma.
Eftir tap gegn heimakonum í opnunarleiknum svaraði íslenska liðið frábærlega og nældi í glæsilegan sigur gegn Portúgal í öðrum leik sínum. Stelpurnar mæta því af krafti og fullar af sjálfstrausti inn í leik dagsins eftir kærkominn hvíldardag í gær.
Þetta er næstsíðasti leikur Íslands í riðlakeppninni en lokaleikurinn gegn Aserbaídsjan fer fram á morgun.
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá leiknum hér



