HomeFréttirErfiður fyrsti leikur gegn Lettlandi

Erfiður fyrsti leikur gegn Lettlandi

Íslenska U15 landslið drengja mátti þola tap gegn öflugu liði Lettlands, 87–63, í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag.

Lettar náðu undirtökunum snemma og byggðu upp jafnt og þétt forskot. Íslensku strákarnir sýndu þó góða baráttu fram á síðustu mínútu.

Guðmundur Noel Jónsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 12 stig. Óttar Davíðsson skoraði 9 stig, meðan Hjörtur Davíðsson og Albert Þorleifsson bættu við 8 stigum hvor. Þá skoruðu Benedikt Þórólfsson og Sölvi Arnarsson 7 stig hvor.

Drengirnir fá tækifæri til að kvitta fyrir tapið strax á morgun, þriðjudag, þegar þeir mæta heimaliði Finnlands.

Tölfræði leiks

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -