Íslensku stelpurnar í U18 landsliðinu lönduðu sínum fyrsta sigri á Evrópumótinu í Rúmeníu í dag þegar þær tóku lið Portúgals í kennslustund.
Leiknum lauk með 21 stigs sigri Íslands, 91:70, en Portúgal hafði unnið báða leiki sína á mótinu fram að þessu.
Rebekka Rut Steingrímsdóttir fór fyrir íslenska liðinu og átti stórbrotinn leik; skoraði 31 stig og greip 10 fráköst. Þá skilaði Sara Björk Logadóttir 15 stigum og Kristín Björk Guðjónsdóttir bætti 13 stigum við.
Íslenska liðið mætti af gífurlegum krafti inn í leikinn og náði 15 stigs forskoti strax í fyrsta leikhluta, 28:13. Eftir þá frábæru byrjun var sigurinn aldrei í hættu og hélt Ísland tryggri stjórn á leiknum allt til enda.
Eftir tvo leiki í B-deild mótsins er staða Íslands nú einn sigur og eitt tap. Næsti leikur þeirra á mótinu er komandi þriðjudag gegn Hollandi.



