HomeFréttirU18 kvenna mætir Portúgal í öðrum leik sínum á EM í dag

U18 kvenna mætir Portúgal í öðrum leik sínum á EM í dag

U18-landslið kvenna í körfuknattleik mætir Portúgal í öðrum leik sínum í A-riðli B-deildar Evrópumótsins í Tulcea í Rúmeníu í dag, sunnudaginn 2. ágúst. Flautað verður til leiks klukkan 10:30 að íslenskum tíma.

Íslensku stelpurnar leita eftir sínum fyrsta sigri á mótinu. Liðið þurfti að játa sigrað gegn sterkum heimakonum í Rúmeníu í opnunarleik sínum í gær þar sem leikurinn fór 100–73 Rúmenum í vil. Portúgalska liðið verður verðugur andstæðingur í dag en þeim er spáð góðu gengi í riðlinum.

Eftir leikinn gegn Portúgal í dag tekur við hvíldardagur hjá íslenska hópnum áður en flautað verður til leiks gegn Hollandi á þriðjudag.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá leik Íslands og Portúgals í spilaranum hér fyrir neðan:

Fréttir
- Auglýsing -