HomeFréttirLeikdagur hjá U18-landsliði kvenna: Mæta heimakonum í fyrsta leik á EM

Leikdagur hjá U18-landsliði kvenna: Mæta heimakonum í fyrsta leik á EM

U18 kvenna hefur leik í B-deild Evrópumótsins í Rúmeníu í dag, laugardaginn 1. ágúst.

Íslensku stelpurnar leika í A-riðli mótsins og mæta strax í erfiðan leik gegn heimakonum í Rúmeníu. Flautað verður til leiks í borginni Tulcea klukkan 15:30 að íslenskum tíma.

Þetta er fyrsti leikur Íslands af fjórum í riðlakeppninni, en næstu daga mætir liðið Portúgal, Hollandi og Aserbaídsjan áður en kemur að útsláttar- og umspilsleikjum mótsins.

Aðalþjálfari liðsins er Emil Barja, honum til aðstoðar eru þær Margrét Ósk Einarsdóttir og Inga Fríða Ingvarsdóttir, og skipa tólf öflugir leikmenn hópinn á mótinu.

Hægt er að fylgjast með öllum leiknum í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan.

Fréttir
- Auglýsing -