Íslenska U18-landslið karla í körfubolta tapaði 83–75 gegn Sviss í B-deild Evrópumótsins í kvöld eftir erfiðar lokamínútur.
Ísland leiddi leikinn í rúmar 24 mínútur og var með þriggja stiga forskot, 73–70, þegar stutt var eftir. Svisslendingar kláruðu leikinn af krafti, unnu lokakaflann 13–2 og tryggðu sér sigur. Tapið þýðir að Ísland spilar um 13. til 16. sæti mótsins í stað 9. til 12. sætis.
Benóní Stefán Andrason var stigahæstur í íslenska liðinu með 18 stig og 8 fráköst, en Jakob Kári Leifsson skoraði 17 stig. Patrik Joe Birmingham bætti við 12 stigum og þeir Leó Steinsen og Sturla Bóðvarsson skoruðu 8 stig hvor.
Ísland mætir Makedóníu á morgun í baráttunni um 13. sætið.



