HomeFréttirGlæsileg endurkoma hjá U18: Svöruðu fyrir tapið með stórsigri

Glæsileg endurkoma hjá U18: Svöruðu fyrir tapið með stórsigri

Íslenska U18 ára landslið drengja komst aftur á sigurbraut á Evrópumótinu í Króatíu með glæsilegum 95-56 sigri á Aserbaídsjan.

Ísland tók stjórnina strax í fyrsta leikhluta, leiddi 43-33 í hálfleik og gáfu ekkert eftir í seinni hálfleik. Varnarleikurinn var sérstaklega öflugur í fjórða leikhluta þar sem Aserbaídsjan skoraði aðeins 8 stig, en mest náði Ísland 41 stigs forystu.

Strákarnir nýttu skotin sín vel, skotnýtingin var 46% og vítanýtingin 75%. Íslenska vörnin knúði fram 25 tapaða bolta. Boltanum var vel dreyft á vellinum sem skilaði heildina 26 stoðsendingum og 45 fráköstum.

Stigaskorunin dreifðist vel á hópinn og náðu fimm leikmenn tveggja stafa stigatölu. Patrik Birmingham og Léo Steinsen voru stigahæstir með 13 stig hvor. Benóní Andrason skoraði 12 stig, Sturla Böðvarsson skilaði 11 stigum og Jakob Leifsson var með 9 stig í góðum sigri.

Eftir þrjá leiki er Ísland komið með tvo sigra og eitt tap í B-riðli mótsins. Liðið sýndi flotta endurkomu eftir tapið gegn Tékkum og tekur dýrmætt sjálfstraust með sér í næstu verkefni í Króatíu.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -