HomeFréttirÍsland mætir Aserbaídsjan í þriðja leik sínum á Evrópumótinu í dag kl....

Ísland mætir Aserbaídsjan í þriðja leik sínum á Evrópumótinu í dag kl. 08:30

U18 ára landslið karla leikur sinn þriðja leik á Evrópumótinu (EuroBasket) í Króatíu í dag, 26. júlí, þegar liðið mætir Aserbaídsjan í Rijeka klukkan 08:30.

Íslenska liðið hefur unnið einn leik og tapað einum til þessa; eftir góðan sigur á Portúgal í fyrsta leik mótsins máttu strákarnir okkar þola stórt tap gegn sterku liði Tékklands í gær.

Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan:

Fréttir
- Auglýsing -