Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta tryggði sér glæsilegan sigur gegn Búlgaríu í átta liða úrslitum Evrópumótsins í Bratislava og er nú komið í undanúrslit keppninnar.
Strákarnir mæta liði Svíþjóðar í dag í gríðarlega mikilvægum leik þar sem allt er undir fyrir íslenska liðið. Með sigri gegn Svíum tryggir Ísland sér ekki aðeins sæti í sjálfum úrslitaleik mótsins heldur einnig sögulegt sæti í A-deild Evrópumótsins á næsta ári.
Það má búast við harðri baráttu og mikilli spennu enda þekkja þessi Norðurlandalið hvort annað vel og Svíarnir eru með sterkt lið á mótinu.
Hérna er hægt að horfa á leikinn í beinu vefstreymi



