HomeFréttirSögulegur árangur þrátt fyrir naumt tap í lokaleiknum

Sögulegur árangur þrátt fyrir naumt tap í lokaleiknum

Íslenska U20 ára landslið kvenna tryggði sér áframhaldandi sæti í A-deild á næsta Evrópumóti með því að vinna þrjá leiki á mótinu í Litáen.

Liðið lauk keppni í dag í 12. sæti mótsins eftir naumt tap gegn Lettlandi, 85:80, í leik um sæti. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik þar sem staðan var 41:38 fyrir Lettland, en þrátt fyrir að Lettar hafi náð tíu stiga forskoti í þriðja leikhluta tókst íslensku stelpunum að hleypa spennu í leikinn undir lokin með því að minnka muninn í fjögur stig.

Hulda María Agnarsdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu í lokaleiknum með 22 stig og Rebekka Rut Steingrímsdóttir skoraði 17 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -