Íslenska U20 landslið kvenna leikur í dag sinn hinsta leik á Evrópumótinu í A-deild þegar liðið mætir Lettlandi. Um er að ræða leik upp á 11. sæti mótsins.
Íslenska liðið hefur gert gífurlega vel á mótinu og þegar tryggt áframhaldandi veru sína í deildinni á næsta ári, sem verður þriðja árið í röð sem liðið leikur í efstu deild. Það verður því spennandi að fylgjast með þeim áfram.
Leikurinn hefst klukkan 11:00 fyrir hádegi og er í beinni útsendingu.
Hérna er hægt að horfa á leikinn



