HomeFréttirMagnaður þriðji leikhluti dugaði ekki til gegn Þjóðverjum

Magnaður þriðji leikhluti dugaði ekki til gegn Þjóðverjum

Lokaleikur íslenska U20-landsliðsins í kvennakörfubolta á Evrópumótinu í Litáen verður leikur um ellefta sæti mótsins á morgun. Þetta varð ljóst eftir sveiflukennt 85-74 tap gegn Þýskalandi í dag, en Ísland mun mæta annaðhvort Lettlandi eða Ungverjalandi í hinstu viðureign sinni. Tapliðið úr þeim leik bítst við Ísland en sigurliðið mætir Þjóðverjum í baráttu um níunda sætið.

Þær Hulda María Agnarsdóttir og Rebekka Rut Steingrímsdóttir drógu vagninn í sóknarleik Íslands í dag, en Hulda skoraði 20 stig og Rebekka fylgdi fast á eftir með 19 stig.

Leikurinn einkenndist af ótrúlegum sveiflum þar sem þýska liðið var mun sterkara í fyrri hálfleik og leiddi verðskuldað með 23 stigum í leikhléi, 51-28, eftir erfiða byrjun íslenska liðsins. Íslensku stelpurnar sneru hins vegar blaðinu algjörlega við í þriðja leikhluta. Með magnaðri frammistöðu skoruðu þær 31 stig gegn aðeins sjö stigum Þjóðverja og tókst þannig að snúa stöðunni sér í vil og leiða með einu stigi, 59-58, fyrir lokafjórðunginn.

Þýska liðið átti hins vegar lokasvarið og hóf fjórða leikhluta á 16-0 spretti á meðan íslenska liðinu mistókst að skora fyrstu fimm mínútur leikhlutans. Þann mun tókst íslenska liðinu ekki að brúa á lokasprettinum og Þýskaland fagnaði sigri.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -