Norðurlandamótið í Finnlandi heldur áfram í dag og það er annar stórleikur fram undan hjá yngri landsliðum Íslands. Bæði undir 16 ára lið stúlkna og drengja mæta Eistlandi í leikjum sínum á mótinu í Kisakallio.
Bæði unnu liðin leiki sína í gær gegn Svíþjóð, en stúlknaliðið er nú með einn sigur og eitt tap á meðan drengirnir hafa unnið báða leiki sína til þessa.
Leikur stúlknanna gegn Eistlandi er á dagskrá kl. 11:15 og drengirnir eiga leik kl. 16:45 að íslenskum tíma.
Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinu vefstreymi frá mótinu
Hérna eru hópar undir 16 ára liða og upplýsingar um aðra leiki
Lifandi tölfræði og stöðutafla – Stúlkur U16 / Drengir U16




