Norðurlandamótið í Finnlandi heldur áfram í dag og það er annar stórleikur fram undan hjá yngri landsliðum Íslands. Bæði undir 16 ára lið stúlkna og drengja mæta Svíþjóð í leikjum sínum á mótinu í Kisakallio.
U16 stúlkurnar ríða á vaðið eftir hádegi, en flautað verður til leiks gegn Svíþjóð klukkan 13:40 á íslenskum tíma.
Strákarnir mæta svo til leiks síðdegis og hefja þeir leik gegn Svíum klukkan 16:25 á íslenskum tíma. Beinar útsendingar verða aðgengilegar á netinu fyrir þá sem vilja fylgjast með og hvetja krakkana til sigurs að heiman.
Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinu vefstreymi frá mótinu
Hérna eru hópar undir 16 ára liða og upplýsingar um aðra leiki
Lifandi tölfræði og stöðutafla – Stúlkur U16 / Drengir U16




