Það er Wodbúð sönn ánægja að tilkynna stórfréttir. Einir af eftirsóttustu körfuboltaskóm heims, Way of Wade, eru loksins á leiðinni til landsins og munu fást í allra fyrsta sinn hjá þeim.
,,Við fögnum komu þeirra og bjóðum uppá léttar veitingar í versluninni okkar í Faxafeni 12, miðvikudaginn 1. Júlí þegar salan á þeim hefst. Athugið að um takmarkað magn er að ræða” Er tekið fram í fréttatilkynningu frá versluninni.
Stór áfangi fyrir Wodbúð
Þetta er stór áfangi fyrir Wodbúð sem hefur lengi lagt sig fram við að bjóða viðskiptavinum sínum upp á það nýjasta og besta sem íþróttaheimurinn hefur upp á að bjóða. Að landa Way of Wade línunni er eitthvað sem þau höfðu lengi stefnt að, og nú er biðin loksins á enda.
Hvað er Way of Wade?
Signature lína Dwyane Wade í samstarfi við Li-Ning hefur um árabil verið þekkt fyrir að gjörbylta bæði hönnun og tækni í körfuboltaskóm. „Encore“ útgáfan af 13. kynslóðinni tekur þetta enn lengra og eru þetta skór sem þú verður að prófa.
- Ótrúleg dempun: Skórinn grípur þig í hverju skrefi og dempar hverja lendingu.
- Hámarksgrip: Sérstakt grip sem tryggir að þú hafir fullkomna stjórn á hröðum stefnubreytingum.
- Útlit sem grípur augað: Það sakar ekki að skórnir líta gríðarlega vel út og grípa þeir svo sannarlega augað á vellinum.
Mýkt og viðbragð frá SUPERIOR CUSHIONING PCD SYSTEM

Kerfið er hannað með plötu sem fleytir þér áfram. BOOM efni fyrir að ofan og neðan plötuna. BOOM efnið frá Li Ning mýkir lendingar og styður við þig í hverju skrefi.
Stöðugri með PROBAR LOC

PROBAR LOC styður vel við þig en er samt sveigjanlegt. Það hjálpar þér að nýta sprengikraft þinn til fulls.
Snið sem hentar flestum

SOLID SYSTEM hönnun frá Li-Ning. Snið sem hentar flestum með frönskum rennilás sem læsir þig í skónum á þægilegan máta. Það fer lítið fyrir honum en hann gerir það að verkum að þú hreyfist mun minna í skónum.
Gríðarlega gott TUFF RB grip

TUFF RB gripið undir skónum er endingargott margátta grip. Það er hannað til að höndla allar hröðu hreyfingarnar sem krefjast þess að þú komist sem fyrst af stað.
Einstök hönnun

Hönnun sem sækir innblástur í loftaflfræði (e. Aerodynamics) bíla og eru allir hlutir skósins frá tungu yfir í hæl hugsaðir útfrá því að komast hraðar á vellinum.
Wodbúð vonast til að sjá sem flest 1. Júlí klukkan 11:00 í Faxafeni 12.





