HomeFréttirEinn sá allra sigursælasti í NBA deildinni heimsækir Ísland

Einn sá allra sigursælasti í NBA deildinni heimsækir Ísland

Hinn sjöfaldi NBA-meistari Robert Horry verður sérstakur gestur á Elite Camp Iceland körfubolabúðunum sem fram fara í Egilshöll dagana 5.–9. ágúst næstkomandi. Horry, sem er betur þekktur sem „Big Shot Rob“ fyrir sínar mikilvægu körfur á úrslitastundu, vann titla með Houston Rockets, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs á farsælum ferli sínum. Á búðunum mun hann miðla af reynslu sinni til ungra íslenskra iðkenda og fara yfir hugarfar meistara, aga og leiðtogahæfni.

Horry bætist í hóp öflugra gesta sem mæta á búðirnar í ár en þar á meðal eru Billy Thompson, tvöfaldur NBA-meistari, og Stacey Lovelace-Tolbert, fyrrverandi WNBA-leikmaður. Þá verður fimmfaldi meistarinn Michael Cooper áfram sendiherra búðanna eftir að hafa komið til landsins á síðasta ári. Elite Camp Iceland er ætlað iðkendum á aldrinum 7–17 ára og er meðstofnandi þess Irving Thomas, yfirnjósnari Los Angeles Lakers. Skráning fyrir búðirnar er þegar hafin í gegnum Abler.

Fréttir
- Auglýsing -