HomeNeðri deildir1. deild karlaÓska leikmanninum velfarnaðar

Óska leikmanninum velfarnaðar

Sigvaldi Eggertsson hefur, líkt og tilkynnt hefur verið, skrifað undir samning við Þór í Þorlákshöfn og yfirgefur þar með lið Fjölnis. Sigvaldi, sem einnig lék með Grafarvogsliðinu veturinn 2017–2018, hefur verið á meðal bestu leikmanna 1. deildarinnar undanfarin tvö ár og verið valinn í úrvalslið deildarinnar í bæði skiptin. Hann átti öflugt tímabil í vetur þar sem hann setti niður tæp 20 stig að meðaltali í leik og dró vagninn í uppbyggingu Fjölnisliðsins.

Hjá Fjölni ríkir eftirsjá en jafnframt þakklæti í garð leikmannsins, sem þykir hafa sett gott fordæmi jafnt innan sem utan vallar. Forráðamenn félagsins sendu frá sér kveðju þar sem Sigvalda er þakkað dýrmætt framlag á liðnum árum og honum óskað gæfu og gengis á nýjum vettvangi í úrvalsdeildinni með Þór.

Fréttir
- Auglýsing -