HomeNeðri deildir1. deild karlaSá besti til Þorlákshafnar

Sá besti til Þorlákshafnar

Sigvaldi Eggertsson hefur skrifað undir samning við Þór Þorlákshöfn og mun leika með liðinu á komandi tímabili.

Sigvaldi kemur til Þórsara eftir frábært tímabil í 1. deildinni þar sem hann var valinn besti leikmaður deildarinnar. Hann var með öflugt framlag á því tímabili en hann skilaði að meðaltali 21 stigi, 9 fráköstum og 5 stoðsendingum í leik.

Forráðamenn Þórs binda miklar væntingar við komu Sigvalda og segja hann fjölhæfan leikmann sem geti haft mikil áhrif á leikinn beggja vegna vallarins. Sjálfur segist Sigvaldi spenntur fyrir flutningunum og að metnaðurinn í kringum félagið hafi heillað sig. Hann stefnir á að hjálpa liðinu að ná árangri, vinna leiki og þróast áfram sem leikmaður.

Fréttir
- Auglýsing -