HomeFréttirLögreglan tapar bardaga í Breiðholtinu

Lögreglan tapar bardaga í Breiðholtinu

Á miðvikudagskvöld mættust lið Aþenu/Leiknis og íslenska lögreglulandsliðsins í körfuknattleik í æfingaleik. Leikið var í Unbroken höllinni í Austurberginu, heimavelli Aþenu/Leiknis. Var leikurinn liður í undirbúningi landsliðsins fyrir undankeppni evrópumóts lögreglumanna en mun liðið halda út næstkomandi mánudag og etja þar kappi við Lúxemborg og Holland upp á laust sæti á evrópumótinu sem haldið verður í Grikklandi í október. 

Bæði lið mættu reiðubúin til leiks en í fyrsta leikhluta var lið Aþenu/Leiknis þó alltaf skrefinu á undan og betra flæði þeirra megin. Hvorugt liðið var að hitta vel fyrir utan og þéttu því bæði teiginn. Að loknum fyrsta leikhluta var staðan 24-16 Aþenu/Leikni í vil. 

Lögreglulandsliðið óx ásmeginn í öðrum leikhluta, fóru að spila af meiri krafti og söxuðu á forskotið. Góður og þéttur varnarleikur var í fyrirrúmi hjá báðum liðum og var staðan að loknum fyrri hálfleik hnífjöfn 33-33 og ljóst að stefndi í spennandi leik. 

Jafnræði var með liðunum í upphafi síðari hálfleiks og skiptust þau á því að taka forystuna. Lögreglulandsliðið endaði þó leikhlutann á þristi vel fyrir utan og fór inn í síðasta leikhlutann með þriggja stiga forskot 51-48. 

Héldu þeir því litla forskoti framan af lokaleikhlutanum en um miðbik hans tókst Aþenu/Leiknir að jafna og komust að endingu yfir þegar um tvær mínútur voru eftir af leiknum. Vörn Aþenu/Leiknis hélt vel síðustu mínúturnar og sigldu þeir sigrinum heim. Lokatölur 65-61. 

Dómarar leiksins, Jón Svan og Brynjar Örn, stóðu sig með eindæmum vel og höfðu góða stjórn á leiknum, sem leikinn var af miklum krafti en einnig drengskap. 

Við hjá Karfan.is óskum lögreglulandsliðinu velfarnaðar í undankeppninni og efumst við ekki um að þessi leikur hafi verið heillaskref á leið þeirra á Evrópumótið – fall er fararheill! 

Fréttir
- Auglýsing -