Drengjalið Hauka í minnibolta 10 ára fagnaði glæsilegum sigri helgina 9. til 10. maí þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir frábæra frammistöðu á lokamóti tímabilsins sem fram fór á Akranesi.
Strákarnir sýndu frábæran leik í úrslitamótum tímabilsins og unnu 7 leiki en töpuðu 3 og kórónuðu þar með tímabilið með gullverðlaunum við mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af liðinu eftir að bikarinn fór á loft.
Mynd / KKÍ



