Stúlknalið Aþenu í minnibolta 10 ára fagnaði glæsilegum sigri helgina 9. til 10. maí þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir frábæra frammistöðu á lokamóti tímabilsins sem fram fór á Ásvöllum.
Stelpurnar sýndu mikla snerpu og liðsheild á vellinum og fóru taplausar í gegnum mótið, en þær unnu alla leiki sína með stakri prýði og kórónuðu þar með tímabilið með gullverðlaunum við mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af liðinu eftir að bikarinn fór á loft.
Mynd / KKÍ



