HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindavík með sigur í fyrsta leik úrslita

Grindavík með sigur í fyrsta leik úrslita

Grindavík sigraði Tindastól með 85 stigum gegn 80 í fyrsta leik úrslitaeinvígis Bónus deildar karla sem fram fór í HS Orku-höllinni að viðstöddum 1200 áhorfendum.

Heimamenn í Grindavík leiddu með 15 stigum í hálfleik, 49-34, en Tindastóll svaraði af krafti í þriðja leikhluta og gerði leikinn spennandi allt til loka. Ólafur Ólafsson var stigahæstur hjá Grindavík með 21 stig en hjá Tindastóli var Taiwo Hassan Badmus atkvæðamestur með 22 stig.

Með þessum sigri tekur Grindavík 1-0 forystu í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Deandre Donte Kane átti sömuleiðis flottan leik fyrir Grindavík með 19 stig og 13 fráköst á meðan Dedrick Deon Basile skoraði 19 stig fyrir gestina úr Skagafirði. Baráttan heldur nú áfram þar sem bæði lið stefna ótrauð á stóra titilinn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -