Í lok næstu viku verður Ísland miðpunktur evrópsks körfubolta þegar tæplega 150 forystumenn íþróttarinnar frá 48 þjóðum koma saman hér á landi.
Tilefnið er ársþing FIBA Europe, en auk þess fara fram stjórnarfundur sambandsins og vinnufundur framkvæmdastjóra körfuknattleikssambanda Evrópu. Fundirnir verða haldnir dagana 15. og 16. maí og munu þar fara fram mikilvægar viðræður um framtíð og stefnumótun alþjóðlegrar körfuboltahreyfingar.
Meðal gesta eru æðstu ráðamenn íþróttarinnar á heimsvísu, þar á meðal forseti FIBA Europe, Jorge Garbajosa, og framkvæmdastjórinn Kamil Novak. Þá munu Sheikh Saud Ali Al-Thani, forseti alþjóðakörfuknattleikssambandsins FIBA, og Andreas Zagklis, framkvæmdastjóri FIBA, einnig sitja þingið.
Viðburðurinn er talinn mikill heiður og mikilvæg viðurkenning fyrir Körfuknattleikssamband Íslands og íþróttalíf í landinu öllu. Það að fá svo umfangsmikið þing til landsins undirstrikar vaxandi vægi íslensks körfubolta á alþjóðavettvangi. Fundarhöldin munu setja svip sinn á höfuðborgina og gefa íslenskum ráðamönnum dýrmætt tækifæri til að treysta tengslin við helstu ákvörðunartökuaðila körfuboltaheimsins.




