HomeBónus deildinBónus deild kvennaLjónynjurnar tóku þrjá leiki í röð og sæti í úrslitum

Ljónynjurnar tóku þrjá leiki í röð og sæti í úrslitum

Njarðvík tryggði sér þriðja árið í röð flugmiðann inn í úrslit Bónusdeildar kvenna. Njarðvík lagði Grindavík í sveiflukenndum en spennandi oddaleik í IceMar-Höllinni, lokatölur 83-72 og einvígið 3-2. Njarðvík sem lenti 0-2 undir í rimmunni sýndi gríðarlegan karakter og vann þrjá leiki í röð!

Njarðvík tók af skarið í þessum oddaleik og opnuðu 10-0 en Grindavík svaraði með 2-13 skvettu og staðan 12-13 en heimakonur náðu forystunni á ný og voru 20-14 yfir eftir fyrsta leikhluta. Njarðvík jók við muninn í öðrum leikhluta og leiddi 44-31 í hálfleik.

Öflugur fyrri hálfleikur hjá Ljónynjunum úr Njarðvík þar sem Dinkins fór fyrir liðinu með 14 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar en hjá Grindavík var Abby Beeman með 9 stig og 3 stoðsendingar.

Aftur í IceMar-Höllinni var það þriggjastiga nýting gestanna sem hefði þurft að vera betri, Grindavík 1-12 í þristum eða 8% í fyrri hálfleik gegn þéttum varnarleik Njarðvíkinga. Heimakonur hinsvegar í góðum takti fyrir utan með 7-13 í þristum eða 53% nýtingu.

Sara Björk kom sér fljótt í villuvandræði hjá heimakonum og fékk þrjár villur á skömmum tíma í fyrri hálfleik og Sofia Roma bauð upp á hörku innkomu af bekknum fyrir Hersler og gerði 7 stig fyrir Njarðvík í fyrri hálfleik.

Fín 13 stiga forysta Njarðvíkinga í hálfleik hvarf eins og dögg fyrir sólu í þriðja leikhluta þar sem Grindavík náði að jafna og komast yfir 48-49 en Njarðvík lokaði leikhlutanum betur og leiddu því 58-51 fyrir fjórða.

Í stuttu máli fór Njarðvík á kostum í upphafi fjórða, Sofia Roma átti flottar rispur og þá kom Krista Gló með tvo stóra þrista og sá síðari reif muninn upp í 20 stig og 6 mínútur eftir af leiknum og allt orðið vitlaust í húsinu. Grindvíkingar reyndu að minnka muninn en skaðinn var skeður og lokatölur 83-72.

Dinkins var stigahæst í Njarðvík með 23 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar og Dani með tröllatvennu sem daðraði við þrennu með 20 stig, 17 fráköst og 7 stoðsendingar. Þá átti Sofia Roma einn sinn besta dag í Njarðvíkurbúning á tímabilinu með 13 stig og 8 fráköst.

Hjá Grindavík var Ellen Nystrom stigahæst með 22 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Abby Beeman bætti við 17 stigum, 6 fráköstum og 7 stoðsendingum.

Það er þá annað árið í röð sem Haukar og Njarðvík munu leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn og í fyrra þurfti oddaleik til að skera úr um sigurvegar í framlengdum slag. Það er nokkuð ljóst að við erum á leið í svakalegt úrslitaeinvígi.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatansson)

Fréttir
- Auglýsing -