HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Evrópumeistarar Bilbao í sex stiga holu fyrir seinni leik...

Tryggvi Snær og Evrópumeistarar Bilbao í sex stiga holu fyrir seinni leik úrslita FIBA Europe Cup

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbao þurfa að vinna upp sex stiga mun í síðari úrslitaleik FIBA Europe Cup eftir 79:73 tap gegn PAOK í Grikklandi í dag. Íslenski landsliðsmiðherjinn var atkvæðamikill í liði ríkjandi meistaranna en hann skilaði sjö stigum, níu fráköstum og tveimur stoðsendingum á þeim hálftíma sem hann dvaldi inni á vellinum í Thessaloniku.

Þrátt fyrir tapið á útivelli er einvígið enn galopið fyrir seinni leikinn sem fram fer á heimavelli Bilbao eftir viku. Þar ræðst hvort spænska liðinu takist að verja titil sinn eða hvort sex stiga forskot grísku andstæðinganna reynist þeim of stór biti að kyngja.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -