Það var rafmagnað andrúmsloft í IceMar-höllinni þegar nágrannarnir Njarðvík og Grindavík mættust í fyrsta leik undanúrslita Bónus deildar kvenna.
Þrátt fyrir öflugt áhlaup heimakvenna í fjórða leikhluta reyndust Grindvíkingar sterkari á lokasprettinum og sigruðu 87-81. Grindavík leiðir því einvígið 1-0 og hefur hrifsað til sín heimavallarréttinn í þessari seríu sem spáð er mikilli spennu. Leikurinn einkenndist af miklum sveiflum þar sem Grindavík náði mest 16 stiga forystu en Njarðvík sýndi mikinn karakter með því að brúa bilið og komast yfir um stundarsakir áður en reynsla gestanna sigldi sigrinum í höfn.
Karfan spjallaði við Einar Árna Jóhannsson þjálfara Njarðvíkur eftir leik í IceMar höllinni.





