HomeBónus deildinBónus deild karlaValsmenn keyrðu yfir Keflvíkinga í fjórða leikhluta og tryggðu sér sæti í...

Valsmenn keyrðu yfir Keflvíkinga í fjórða leikhluta og tryggðu sér sæti í undanúrslitum

Í kvöld kom í ljós að það verður Valur sem mætir Grindavík í undanúrslitum Bónusdeildar karla eftir sigur á Keflavík í hreinum úrslitaleik um sætið. Liðin áttust við í fimmta og síðasta leik átta liða úrslitanna, en þar sem allir leikir syrpunnar höfðu verið spennandi var búist við mikilli hörku. Sú varð raunin fyrstu þrjá leikhlutana; Keflavík vann fyrsta og þriðja leikhluta en Valur þann annan. Það var svo ekki fyrr en í fjórða leikhluta að allt small saman hjá Valsmönnum. Þeir keyrðu þá hreinlega yfir Keflvíkinga og tryggðu sér öruggan 90-76 sigur í N1-höllinni, sem iðaði af stemningu löngu áður en flautað var til leiks.

Leikurinn byrjaði af miklum krafti og liðin virtust hvergi taugastyrkt því skotnýtingin var góð beggja megin. Liðin skiptust á að hafa forystuna og sýndu lipra takta í sóknarleiknum. Undir lok fyrsta leikhluta áttu Valsmenn þó nokkrar slakar sóknir og nýttu vítaskotin illa, sem varð til þess að Keflavík náði fimm stiga forskoti, 17-22. Annar leikhluti var jafn og spennandi. Eftir snemmbúið leikhlé hjá Finni Frey, þjálfara Vals, jafnaðist leikurinn og komst Valur yfir með mikilvægum þristi frá Callum. Þrátt fyrir að Keflvíkingar hafi reynt að svara fyrir sig tókst Valsmönnum að gefa í undir lok fyrri hálfleiks og leiddu með sex stigum í hléi, 44-38.

Keflvíkingar mættu aftur sterkir til leiks í síðari hálfleik og náðu fljótt forystunni á ný, sem knúði Val í annað leikhlé. Eftir það hélt spennan áfram og liðin skiptust á að leiða. Remy Martin virtist ætla að taka leikinn yfir fyrir Keflavík, en Woods og félagar í Val voru á öðru máli. Fyrir lokafjórðunginn var staðan 65-63, Val í vil. Kári Jónsson mætti af krafti í fjórða leikhluta með þriggja stiga körfu og stoðsendingu en þurfti skömmu síðar að fara af velli eftir högg á ökklann. Það virtist þó ekki slá Valsmenn út af laginu; Lasar setti niður sjaldséðan þrist og Booker bætti við öðrum sturluðum þrist sem tryllti heimamenn og kom Val 13 stigum yfir þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir.

Við þetta mótlæti hrundi leikur Keflvíkinga á meðan Valsmenn gengu á lagið og kláruðu verkefnið með stíl. Hjá Val var Booker frábær með 29 stig og Woods skilaði 23 stigum og 6 stoðsendingum. Hjá Keflavík var Remy Martin stighæstur með 23 stig og Bulic bætti við 21 stigi og 8 fráköstum. Með þessum sigri er ljóst að Valsmenn munu mæta Grindavík í undanúrslitum, en fyrsti leikurinn í þeirri rimmu fer fram í Grindavík þann 22. apríl næstkomandi.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -