Fjórum leikjum er lokið í Bónus deild kvenna í kvöld þar sem heimaliðin höfðu betur í þremur viðureignum af fjórum.
Stjarnan nýtti tækifærið til að jafna taplaust lið Grindavíkur á toppi deildarinnar á meðan Haukar, Valur og KR komu sér öll upp í átta stig og mynda nú þéttan pakka í baráttunni um efstu sætin. Á hinum endanum sitja Ármann og Fjölnir enn bæði stigalaus á botninum eftir sex umferðir.
Úrslit leikjanna
- Stjarnan 110 – 69 Fjölnir
- Ármann 78 – 95 Haukar
- KR 83 – 78 Tindastóll
- Valur 87 – 70 Keflavík





