HomeNeðri deildir1. deild karlaÞurfum á hvíldinni að halda

Þurfum á hvíldinni að halda

Haukar stigu stórt skref í átt að undanúrslitum í kvöld með gríðarlega dýrmætum eins stigs sigri á Selfossi, 90-89, í Ólafssal.

Með sigrinum taka Haukar forystuna í einvíginu, 2-1, og geta tryggt sér sæti í næstu umferð með sigri í fjórða leik liðanna. Á sama tíma lauk einvígi Breiðabliks og Skallagríms í Smáranum þar sem Blikar tryggðu sér farseðilinn í undanúrslitin með 87-80 sigri. Breiðablik vann þar með einvígið samanlagt 3-0 og fylgir Sindra eftir inn í næstu umferð.

Karfan spjallaði við Hrafn Kristjánsson þjálfara Breiðabliks eftir leik í Ólafssal.

Fréttir
- Auglýsing -