Það var bæði gleði og sorg í loftinu í HS Orku-höllinni þegar lokaumferð Bónus deildar karla fór fram.
Grindvíkingar tóku á móti Þór Þorlákshöfn í leik sem lauk með 108–94 sigri heimamanna. Þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki breytt stöðu Grindavíkur á toppnum, voru þau örlagarík fyrir gestina úr Þorlákshöfn.
Karfan spjallaði við Jóhann Þór Ólafsson þjálfara Grindavíkur eftir leik í HS orku höllinni.





