HomeBónus deildinBónus deild karlaStórsigur Þórsara í Þorlákshöfn

Stórsigur Þórsara í Þorlákshöfn

Það var allt undir í Icelandic Glacial höllinni í kvöld þegar Þór Þorlákshöfn tók á móti Njarðvík í næstsíðustu umferð Bónus deildarinnar. Fyrir leikinn var staða liðanna ólík; Þórsarar berjast fyrir lífi sínu í deildinni á meðan Njarðvíkingar þurftu sigur til að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni. Niðurstaðan varð hins vegar algjör einstefna þar sem heimamenn sýndu ótrúlegan styrk og unnu að lokum 37 stiga sigur, 109–72.

Heimamenn mættu dýrvitlausir til leiks og leiddu 29–20 eftir fyrsta leikhluta. Þótt Njarðvík tæki aðeins við sér í öðrum fjórðungi tókst Þór að halda átta stiga forystu í hálfleik, 51–43. Í síðari hálfleik hrundi leikur gestanna hins vegar algjörlega. Þórsarar unnu lokaleikhlutann með ótrúlegum tölum, 33–11, og tryggðu sér tvo gríðarlega mikilvæga punkta í botnbaráttunni fyrir lokaumferðina.

Djordje Dzeletovic var atkvæðamestur Þórsara með 26 stig og 6 fráköst, en Lazar Lugic bætti við 24 stigum. Þá átti Dachon Burke fínan leik með 20 stig og 8 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Dwayne Lautier-Ogunleye nánast einn á báti með 21 stig. Njarðvíkingar hittu hrikalega illa fyrir utan þriggja stiga línuna, eða aðeins 23%, sem varð þeim að falli gegn sjóðheitum heimamönnum sem neituðu að gefa þumlung eftir í baráttunni um sæti sitt í deildinni.

Tölfræði leiks

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -