HomeÚti í heimiEvrópaStólarnir úr leik í ENBL

Stólarnir úr leik í ENBL

Tindastóll tók á móti Riga Zelli í 16-liða úrslitum ENBL keppninnar í körfubolta í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Stólar höfðu tryggt sér heimavallarrétt með góðri spilamennsku í riðlakeppninni og fengu því góðan séns á að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitunum í þessum leik.

Leikurinn fór frekar rólega af stað og liðin voru ekki að hitta vel í byrjun. Staðan 12-12 þegar um þrjár mínútur lifðu fyrsta leikhluta. Þá tóku gestirnir á góðan sprett og breyttu stöðunni úr 14-13 í 14-20 en Stólar náðu að svara því eftir leikhlé hjá Arnari og áttu síðustu 5 stig leikhlutans. Annar leikhluti byrjaði frekar jafnt en svo fóru gestirnir að hitta eins og andsetnir úr skotum að utan og náðu mest 10 stiga forskoti. Stólar svöruðu aftur með síðustu 5 stigum leikhlutans og staðan 45-50 í hálfleik.

Þriðji leikhluti var gríðarlega jafn en Stólar náðu þó aldrei að jafna eða komast yfir. Gestirnir héldu áfram að hitta fyrir utan og voru með betri þriggja stiga nýtingu en vítanýtingu og það er erfitt að ráða við slíkt. Stólar voru þó ekkert á því að gefast upp og komu sterkir inn í lokafjórðunginn og jöfnuðu í 80-80 með vítum frá Taiwo. Gestirnir létu þó ekki slá sig út af laginu, héldu áfram að hitta vel og spiluðu sterka vörn. Þristur frá Berzins og fáránlegur tapaður bolti frá Taiwo gerði í raun útslagið þegar um 2 mínútur voru eftir og gestirnir sigldu sigrinum heim. Evrópuævintýri Stóla því lokið og hægt að einbeita sér að deildinni hér heima.

Tölfræði leiksins

Hjá Tindastól var Taiwo atkvæðamestur með 27 stig og 10 fráköst en tapaði líka 5 boltum sem er dýrt. Basile og Júlli áttu ágætan leik en Geks, Raggi og Pétur voru ekki að finna sig. Í jöfnu liði gestanna sem hittu 51% úr þristum í leiknum var Fidler stigahæstur og Janis Berzins kom geysisterkur inn af bekknum með 19 stig.

Myndasafn ( Væntanlegt )

Viðtal :

Umfjöllun / Hjalti Árna

Fréttir
- Auglýsing -