Tindastóll tekur á móti Riga Zelli frá Lettlandi í 16 liða úrslitum ENBL deildarinnar í kvöld. Um er að ræða hreinan úrslita leik þar sem sigur liðið fer áfram í 8 liða úrslit en þar breytist fyrirkomulagið í heima og heiman leiki og allt endar þetta í körfubolta veislu einsog þekkist á bikar helgum KKÍ en staðsetning fyrir úrsita helgina hefur ekki verið gefin upp.
Tindastóll endaði í 6. sæti deildarinnar sem gaf þeim heimaleikjarétt í þessari umferð og ef einhverjir kunna að búa til góða stemningu þá eru það króksarar með Grettismenn í fararbroddi.
Í liði Riga má meðal annars finna fyrrum leikmann Njarðvíkur og Grindavík Khalil Shabazz en þeirra sterkasti maður er sennilega Frankie Fidler frá Bandaríkjunum.
Karfan hvetur alla sem geta til að mæta á leikinn og styðja þannig við íslenskan körfubolta en fyrir þá sem eiga ekki komast í Skagafjörð þá verður leikurinn að sjálfsögðu sýndur á Tindastóll TV og hefst klukkan 19:15.
Evrópuleikur á Sauðárkróki í kvöld
Fréttir





