Tindastóll tók á móti Grindavík í Bónus deild karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Stólar áttu harma að hefna eftir að Grindavík hreinlega rústaði þeim í fyrri leik liðanna í Grindavík.
Leikurinn byrjaði fjörlega og gestirnir komu tilbúnir inn í Síkið. Stólarnir byrjuðu þó aðeins betur en Grindavík kom til baka og leiddu 7-12 og 10-15 en afmælisbarnið Arnar Björnsson var að setja þrista í byrjun og Stólarnir aldrei langt undan. Eins og oft áður var það þó þannig að Stólarnir voru að fá á sig allt of mikið af stigum í fyrsta fjórðung og gestirnir leiddu 26-30 eftir hann. Stólar komu vel gíraðir inn í annan fjórðung og skoruðu fyrstu 8 stig hans. Grindavík tók leikhlé og Kane svaraði með 5 stigum í röð og gestirnir komnir aftur yfir. Gríðarlegur hraði í leiknum og mikið leyft sem virtist bitna aðeins meira á heimamönnum sem voru orðnir ansi pirraðir. Þeir náðu þó áttum og leiddu í hálfleik 46-40, fengu einungis 10 stig á sig í öðrum leikhluta. Efast um að það hafi komið fyrir Grindavík áður að skora bara 10 stig í leikhluta.
Það tók gestina aðeins rúma mínútu að jafna leikinn í seinni hálfleik en Stólarnir seigluðust framúr aftur og Adomas Drungilas var að eiga fínan leik. Leikurinn hrökk svolítið fram og til baka seinnipart þriðja fjórðungs og gestirnir slepptu heimamönnum aldrei of langt frá sér. Staðan 63-60 fyrir lokaátökin. Í fjórða leikhluta var sama sagan upp á teningnum, Stólar rykktu aðeins frá en gestirnir komu alltaf til baka og oftast með þrist frá Óla sem setti þrjá slíka í leikhlutanum auk þess að eiga gott 3 point play undir körfunni. Pargo minnkaði svo muninn í 1 stig þega 24 sekúndur voru eftir en heimamenn sigldu heim sterkum sigri af vítalínunni og þá var kátt í Síkinu.
Hjá gestunum varð Óli stigahæstur með 22 stig og Kane setti 21. Pargo var með 14 stig, 12 stoðsendingar og 8 fráköst. Hjá Stólum var Drungilas með tröllatvennu, 25 stig og 13 fráköst en Basile og Taiwo höfðu frekar hægt um sig. Arnar afmælisbarn skilaði 12 stigum en hefur oft hitt betur.
Mynd / Taiwo sækir að Mortensen





