Fyrrum leikmaður Grindavíkur Khalil Shabazz mun á nýjan leik leika á Íslandi.
Líkt og tilkynnt hafði verið hafði Khalil samið við Riga Zelli í Lettlandi eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Grindavík síðustu mánaðarmót.
Hann mun þó koma með nýju liði sínu og leika gegn Tindastóli í 16 liða úrslitum ENBL deildarinnar. Tindastóll endaði í 6. sæti deildarinnar og í 16 liða úrslitum verður andstæðingurinn Riga Zelli frá Lettlandi en þeir enduðu i 11. sæti, en leikið verður í mars.




