spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTaiwo hetjan er Tindastóll lagði Brussel

Taiwo hetjan er Tindastóll lagði Brussel

Tindastóll tók á móti Brussel í síðasta heimaleik sínum í ENBL deildinni en liðið hafði þegar tryggt sig áfram í 16 liða úrslit deildarinnar en Stólar höfðu átt erfitt hér heima.

Leikurinn fór gríðarlega hratt af stað og það var strax ljóst að það yrði á brattann að sækja hjá Stólum gegn öflugu liði gestanna sem voru stórir, sterkir og fljótir. Þeir voru líka að hitta vel í byrjun og náðu snemma góðri forystu. Stólar náðu þó að halda í við þá í fyrri hálfleik með því að vera duglegir að sækja á körfuna og fá víti. Staðan 47-51 í hálfleik og þá höfðu gestirnir sett niður 9 af 13 þriggja stiga skotum sínum en Stólar höfðu náð í 20 víti og sett niður 17 en gestirnir fengu aðeins 2 víti í fyrri hálfleiknum. Þetta snerist aðeins við í þriðja leikhluta og þá héldu gestirnir sér inni í leiknum af vítalínunni, einkum Libert.

Leikurinn var í járnum í seinni hálfleik en Stólarnir virtust hafa fundið sjálfstraustið og hertu að auki vörnina. Gestirnir fóru að tínast útaf með 5 villur einn af öðrum og stóri maðurinn þeirra þurfti að yfirgefa húsið snemma í seinni hálfleik eftir árekstur við Taiwo. Leikurinn var jafn fram á síðustu mínútu þar til Taiwo setti risaþrist úr horninu og kom Stólum í 96-92. Gestirnir náðu ekki að svara og Stólar sigldu heim geysisterkum sigri.

Hjá Stólum var Basile frábær með 23 stig, 4 stoðsendingar og 2 stolna. Arnar, Geks og Taiwo stóðu líka með í stigaskorinu. Hjá gestunum var Libert allt í öllu og endaði með 29 stig.

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -