spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaKKÍ TV - Bylting í aðgengi að neðri deildum og yngri flokkum

KKÍ TV – Bylting í aðgengi að neðri deildum og yngri flokkum

KKÍ TV mun er farin í loftið, en það er stöð sem sýna á frá neðri deildum íslensks körfubolta.

Verkefnið mun hafa verið í þróun síðustu vikur og mánuði, en um er að ræða byltingu er varðar aðgengi aðdáenda að íþróttinni þar sem fyrirhugað er að senda beint frá öllum leikjum fyrstu deilda karla- og kvenna og 2. og 3. deild karla eftir því sem kostur gefst. Þá verður einnig sýnt frá leikjum yngri flokka í úrslitakeppni á stöðinni.

Útsendingar hefjast dagana 11.-12. febrúar þegar allir leikir í 1. deild verða sýndir í beinni á KKÍ TV. Í febrúar verða allir leikir aðgengilegir í opinni dagskrá en frá og með 1. mars verður KKÍ TV rekið sem áskriftaþjónusta.  Verðið á KKÍ TV verður 1.990 kr. á mánuði. KKÍ TV verður aðgengilegt í gegnum myndlykla Sýnar og SÝN sjónvarps appið.

Fréttir
- Auglýsing -