Njarðvík og Álftanes börðust hetjulega í kvöld um stigin tvö sem í boði voru í IceMar-Höllinni í Bónusdeild karla.
Lokatölur 101-96 Njarðvík í vil þar sem Veigar Páll Alexandersson setti stóru körfurnar þegar allt var í járnum og gaf Njarðvík það hænufet sem þurfti til að landa sigrinum. Magnaður leikur að baki í Njarðvík þar sem ekkert var gefið eftir.
Karfan spjallaði við Rúnar Inga Erlingsson þjálfara Njarðvíkur eftir leik í IceMar höllinni.




