Angélina Turmel hefur samið við Keflavík fyrir yfirstandandi átök í Bónus deild kvenna.
Angélina er 29 ára, 197 cm franskur miðherji sem er með mikla reynslu úr sterkum deildum í Frakklandi, Tékklandi, Ítalíu og Þýskalandi. Hún hefur leikið með liðum á borð við UF Angers, Slavia Prague, Sanga Milano og síðast með Rutronik Stars Keltern þar sem hún varð bæði þýskur meistari 2025 og vann silfur í þýska bikarnum.



