spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaMikilvægur og öruggur sigur Þórs gegn nýliðum ÍA

Mikilvægur og öruggur sigur Þórs gegn nýliðum ÍA

Þór lagði ÍA nokkuð örugglega í Þorlákshöfn í kvöld í 12. umferð Bónus deildar karla, 105-75.

Þórsarar eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar með 8 stig á meðan ÍA eru í 11. sætinu með 6 stig.

Segja má að heimamenn í Þór hafi leitt leik kvöldsins frá byrjun til enda. Forskot þeirra eftir fyrsta leikhluta sex stig og þegar í hálfleik var komið munaði sautján stigum á liðunum. Gestirnir af Akranesi náðu lítið að vinna á forystu heimamanna í upphafi seinni hálfleiks, en fyrir þann fjórða hafði Þór enn bætt við, 81-60.

Í lokaleikhlutanum nær Þór svo að koma í veg fyrir að ÍA komist á nokkurn hátt inn í leikinn og er sigur þeirra að lokum gífurlega öruggur, 105-75.

Stigahæstir heimamanna í leiknum voru Djordje Dzeletovic með 31 stig og Lazar Lugic með 21 stig.

Fyrir ÍA var stigahæstur Lucien Thomas Christofis með 16 stig og Josip Barnjak bætti við 15 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -